Flögri á leið til Quatar - Allt í plati fyrsti Apríl !! 1st of April Prank !!
Skrifað af Pjetur N. Pjetursson 1. apríl 2012
Við erum ekkert sérstaklega glöð á Sólvangi að hafa selt glæsi stóðhestinn okkar hann Flögra frá Sólvangi. Ólafur Ólafsson eigandi Samskipa var á ferðinni um suðurland um daginn með mági mínum honum Heimi sem sér um eignaumsýslu fyrir Ólaf hér á landi. Þeir renndu við í kaffi á Sólvangi. Elsa var eitthvað að segja frá ræktuninni okkar og kom þá Flögri til tals. Ólafur vildi endilega fá að sjá hestinn og hreifst svo af honum að hann keypti hann á staðnum. Ólafur sagðist þurfa að launa vini sínum Al-Thani greiða sem hann ætti inni hjá honum og hugsaði Flögra sem gjöf til hans.
Al-Thani er Emírinn af Quatar og á eitt stærsta hrossaræktarbú í sameinuðu Arabísku furstadæmunum á „thoroughbred“ arabískum hestum. Al-Thani á meðal annars hina frægu verðlaunahesta þá Tabarak og Sheridan sem höluðu inn tekjur á síðasta ári fyrir rúmlega 2 milljónir Evra.
Til að venja Flögra við hitan og rakann í Quatar verður hann næsta mánuðinn í Hólaborg og verður þar í sérstöku prógrammi í hitalömpum og í nýja hitaklefanum sem er eins konar „hot Yoga“ fyrir hesta.
Ólafur hefur síðan boðið Siggu Pje að fylgja hestinum eftir og þjálfa hann fyrstu mánuðina í Quatar og kenna þjáfurum Emírsins öll undirstöðu atriði varðandi þjálfun íslenska hestsins og fylgja Flögra fyrstu sporin sín þar.
Við getum því miður ekki gefið upp verðið sem við fengum fyrir Flögra, en eitt er víst að nú getum við byggt nýja reiðskemmu á Sólvangi.

|
|
Flögri - Breeding Show in Selfoss 2011
|
Vala frá Sólvangi in A-finals at World TöltVala frá Sólvangi was doing great in Odense in Denmark last weekend. She is ridden by the talented danish rider Stephanie Nilsen and they have been doing very well in competitions over the last two years.
In the World Tölt they ended up in the 5th place in T1. Here below you can see Vala and Stephanie and Jói Skúla and Hnokki frá Fellskoti in the finals. |
Congratulations Vala and Stephanie ;)I borrowed the photos from Facebook. The one above comes from: Cecilie Hayley Smith. The one to the left comes from: Matilde Bogh |
Hafþór frá Sólvangi doing well in Germany - StörtalIt is so nice to get news from the horses we have been breeding and selling abroad. This nice gelding, Hafþór frá Sólvangi, has been doing well in competitions in Germany with his owner Inga Trottenberg who lives at Störtal. Hafþór is after Bára frá Köldukinn and Spölur frá Hafsteinsstöðum. He is just born in 2005 so hopefully we will see more of them on the tracs this summer ;)
|
|
|
Ösp frá Sólvangi og ElsaÖsp er mjög efnileg hryssa undan Spöl frá Hafsteinsstöðum og Rót frá Kílhrauni. Þetta er virkilega góð hryssa í alla staði, með gott geðslag og vilja og frábærar gangtegundir. Hún er til sölu og frekari upplýsingar um hana má finna hér á sölusíðunni okkar eða endilega bara hafið samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna.
Ösp is a very talented young mare after Spölur frá Hafsteinsstöðum og Rót frá Kílhrauni. This mare has great gates and a very nice character and spirit. She is for sale and you can find more info on her here or you can of course contact us for further info. |
Do you want to take riding lessons with a professional Icelandic riding teacher?We are two professional riding teachers with a lot of experience.
Do you need a riding teacher to come to your farm. Check this out!!! |
|
|
Lengi má gott batna ;)
|
Skuggi að komast í gírinn!!
|
|
Spölur aftur kominn heim á Sólvang ;)Það er gaman að segja frá því að höfðinginn hann Spölur frá Hafsteinsstöðum er kominn aftur hérna heim á Sólvang og er að leita að nýjum eiganda. En eins og glöggir vita þá áttum við hann í nokkur ár okkur til gagns og yndis. Við höfum fengið rúmlega 20 afkvæmi undan honum og langflest þeirra hafa verið afburðar skemmtileg hross, með frábært geðslag og fyrst og fremst gott tölt. Hann hefur einnig verið að gefa okkur eitthvað að hrossum með þennan sérstaka lit sem að fáir hafa geta skilgreynt svo vit sé af ;) Spölur er einn sá eftirminnilegasti hestur sem við höfum átt og á hann svo sannarlega stóran sess í hjarta okkar og þess vegna vonumst við til að geta fundið honum gott framtíðarheimili. Það verður sko enginn svikinn af því að eiga þennan gæðing enda fátt skemmtilegra en að sitja klárinn á tölti og gefa í og skilja hina eftir í rykinu ;) Og þetta er náttúrulega einn besti kandidat sem maður gæti hugsað sér fyrir barn á LM 2012!!!
Það eru frekari upplýsingar um Spöl inná sölusíðunni okkar og svo er um að gera að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna ;) |
Uppfærð sölusíða !!!24. september 2011
Það er komið eitthvað af nýjum hrossum inná síðuna hjá okkur og erum að vinna í því að setja inn meira. Hérna til hliðar er til dæmis myndband af henni Ösp frá Sólvangi, sem er feikna efnileg hryssa í alla staði. Endilega kíkið á sölusíðuna ;) Erum með fullt af söluhrossum á járnum og í þjálfun. Frumtamningarnar ganga vel ;) Það er búið að gera 8 þriggja vetra tryppi reiðfær í þessum mánuði. Flest eru þau héðan frá Sólvangi. Við eigum svo til viðbótar 4 þriggja vetra tryppi sem eru ennþá úti, þar af 2 graðhesta, sem að koma svo bráðlega inn. Gaman að fylgjast með hvað ungviðið er fljótt að læra ;) Og enn skemmtilegra að sjá ræktunina skila sér. Frammundan eru svo sauðfjárréttir um helgina hérna á Eyrarbakka og í kjölfarið er sláturtíð ;) |
|
Frumtamningar, söluhross og ný heimasíða ;)4.09.2011 - Sigga Pje
Haustið er alltaf skemmtilegur tími, hjá okkur er það nefnilega tími frumtamninganna. Einnig erum við með mikið af söluhrossum inni. Þetta verður hálfgert kvennafans þarna úti í hesthúsi hjá okkur í haust en við erum 5 skvísur sem að erum að ríða hérna út. Þ.e. auðvitað ég (Sigga) og mamma (Elsa) og svo eru það hún Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir, Kristine Løkken og Helena Kroghen. Enn eru einhver pláss laus í tamningu og þjálfun en það er um að gera að hafa samband sem fyrst ef hugur er á að nýta sér "krafta" okkar ;) Annars er bara gott að frétta úr sveitinni - allir hressir og kátir og loksins loksins smá útlitsbreyting á heimasíðunni. Það vantar nú enn eitthvað smotterí hér og þar en vonandi fyrirgefst það nú ;) |
Viðtal við Siggu og Villu á Hestafréttum.is
Hestafréttir hitti þær Sigríði Pjetursdóttur og Vilfríði Sæþórsdóttur en þær eru á fullu þessa dagana við tamningar og þjálfun á Sólvangi við Eyrarbakka. Þær stöllur harðbönnuðu blaðamanni hinsvegar að taka viðtalið uppá myndband, sögðust þurfa mun meiri fyrirvara fyrir myndatökur eins og sönnum drottningum sæmir.
En hvernig hefur sumarið annars gengið hjá ykkur hérna á Sólvangi?
„Sumarið hefur gengið mjög vel, reyndar höfðum við ekki tíma til að gera allt sem við ætluðum, stefndum t.d. á fleiri hestaferðir og tíminn hljóp soldið frá okkur, en það er búið að ríða mikið út og sumarið gengið vel fyrir sig. Ég er með stelpurnar mínar tvær, Elsu og Berthu en þær eru á öðru og þriðja ári og þurfa að sjálfsögðu sinn tíma. Allavega sé ég fram á að gera „aupair“ ráðstafanir fyrir næsta sumar ef ég ætla að geta verið meira í hestunum“, segir Sigga og hlær.
Eruð þið með öflugt starfsfólk með ykkur í liði
„Hún Villa hefur verið hjá okkur í sumar með sína starfssemi en við þekkjumst vel, hún var að vinna hjá okkur síðasta haust og það er gott að hafa hana með okkur. Síðan verðum við fimm stelpur í haust að temja og ríða út svo það verður mikið fjör, tvær norskar, önnur reyndar hálf íslensk, Helena dóttir Unn Kroghen og Alla Aðalsteinssonar. Þannig að það verður mikið í gangi og skemmtilegur tími framundan.“ Segir Sigga og Villa bætir við að hún ætli að reyna að vera eins lengi á Sólvangi og hún komist upp með, enda skemmtilegt andrúmsloft og góður félagsskapur.
Og eruð þið með mikið að spennandi tryppum?
„Já já, mér finnst haustið vera frábær tími, við erum að temja mikið úr okkar ræktun og það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með ræktuninni og almennt temja tryppin og gera þau reiðfær.“ Segir Sigga. „Lesa í augað og spá og spekúlera í framtíð þessara hrossa, það er ótrúlega skemmtilegt“ bætir Villa við.
Haustútsölur í gangi
„Við ætlum síðan að opna búð hérna í haust en við höfum boðið uppá nokkurskonar haustútsölur síðustu haust. Það þarf alltaf að fækka hrossunum á þessum tíma til að koma nýjum hrossum fyrir og þá reynum við að vera liðleg með verðin. Síðan vorum við líka að spá í að vera með haustmót, og vera þá með hágmörk inná mótið en ekki lámörk svo við getum unnið einhverja titla í lok ársins“ segja þær og hlæja, og bæta við að þær stelpurnar ætli að koma gríðarlega sterkar inná næsta ári.
Og með þeim orðum kveðjum við þessar eldspræku stelpur sem eru greinilega jákvæðar fram í fingurgóma en þær taka hross í tamningu og þjálfun og bjóða uppá reiðnámskeið á Sólvangi.

Gerið góð kaup á Sólvangi
- erum með söluhross af öllum stærðum og gerðum á frábæru síðsumarstilboði 20.08.2011 - Sigga Pje Það eru komin video af nokkrum nýjum hestum hérna inná síðuna (Söluhross) og erum að vinna í því að setja inn fleiri. Endilega hafið samband ef þið eruð að leita að draumahestinum og við reynum að hjálpa þér við að finna hann ;O) Einnig eru nokkur pláss laus í tamningu eða þjálfun. |