Sólvangur - www.hesturinn.is
  • Heim/fréttir
    • Gamlar fréttir
    • Söluhross
    • Kennsla
    • Sólvangur
      • Um okkur
        • Hafðu samband
          • Myndir
          • Ræktun
            • Flögri frá Sólvangi
              • Skuggi frá Sólvangi
                • Folöld 2011
                • English/News
                  • Horses for sale
                    • Riding lessons
                      • Sólvangur>
                        • About us
                          • Contact us
                          • Breeding>
                            • Flögri frá Sólvangi
                              • Skuggi frá Sólvangi
                              • Old News

                              Flögri og Hágangur

                              -taka á móti merum strax eftir LM

                              20.06.2011 - Sigga Pje

                              Þessir 2 glæsilegu stóðhestar verða í girðingum í nágrenni Sólvangs strax eftir Landsmót.

                              Flögri frá Sólvangi

                              Picture
                              tekur á móti merum á Sólvangi við Eyrarbakka eftir Landsmót. Flögri er hátt dæmdur einstaklega fallegur klárhestur með 8.23 í aðaleinkunn. Þar af hvorki meira né minna en 8.68 fyrir byggingu (9.5 fótagerð, 9 háls/herðar/bógar og prúðleiki) og 7.92 fyrir hæfileika (9 fyrir Stökk, hægt tölt og hægt stökk, 8.5 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið). Flögri verður á Landsmóti í afkvæmasýningu Gára frá Auðsholtshjáleigu þar sem að hann mun taka á móti heiðursverðlaunum.

                              Verð á folatolli og girðingu er 50.000 + vsk. Tekið verður á móti hryssum 6-9 júlí eða eftir samkomulagi. Upplýsingar hjá Elsu í s: 8927159 eða á elsa-m@islandia.is

                              Hágangur frá Narfastöðum

                              Picture
                              tekur á móti merum á Eyrarbakka eftir Landsmót á vegum Búnaðarfélags Eyrarbakkahrepps. Hágangur er hátt dæmdur einstaklega geðgóður klárhestur með 8.31 í aðaleinkunn. Þar af 8.41 fyrir byggingu og 8.25 fyrir hæfileika (9 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið).Hann verður sýndur með afkvæmum á LM 2011 en verður einnig keppandi í Barnaflokki ásamt eiganda sínum Ingunni Ingólfsdóttur - en þau hafa gert garðinn frægan um nokkurt skeið enda frábært par þar á ferð.

                              Verð á folatolli er 85.000 + vsk og girðingargjald með sónar er 25.000 krónur. Tekið verður á móti hryssum 6-9 júlí. Upplýsingar hjá Siggu Pje í s: 8997792 eða á siggapjeturs@simnet.is


                              Elsa og Sjóður á LM 2011

                              Picture
                              - munu keppa fyrir hönd Sleipnis í B-flokki

                              14.06.2011 - Sigga Pje

                              Elsa og Sjóður frá Sólvangi (m: Steinvör frá Nautabúi f: Óður frá Brún) stóðu sig mjög vel á Gæðingamóti Sleipnis og höfnuðu í fjórða sæti í B-flokki gæðinga. En það færði þeim einnig farmiða á Landsmótið. Spennandi nýtt par þarna á ferðinni ;) Sjóður er að sjálfsögðu úr okkar ræktun og hefur mamma hans hún Steinvör verið að gefa okkur hvern gæðinginn á fætur öðrum. Enda var hún sjálf frábært hross, bæði með fyrstu verðlaun fyrir hæfileika og sterk á keppnisvellinum. Var til að mynda einu sinni í öðru sæti í fimmgangi á Íslandsmóti. Ein systirin heitir Vala frá Sólvangi, er 6 vetra og er undan honum Leikni frá Vakurstöðum en hana seldum við til Danmerkur fyrir 2 árum. Hún er að vekja mikla lukku þar ytra og um síðustu helgi vann hún bæði tölt (einkunn:7.70) og fjórgang (einkunn: 7.17) á stóru móti í Álaborg.

                              Create a free website with Weebly